Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Margrét Héðinsdóttir, formaður frjálsíþróttadeildar ÍR hafa skrifað undir samning vegna framkvæmda við frjálsíþróttavöll í Suður-Mjódd. Hanna á nýjan frjálsíþróttavöll ÍR og verða útboðsgögn undirbúin innan tíðar svo hægt verði að hefja framkvæmdir síðar á árinu.
Uppbygging frjálsíþróttavallarins er hluti af samningi sem Reykjavíkurborg og Íþróttafélag Reykjavíkur gerðu á nýliðnu ári um skipulagsvinnu og uppbyggingu í Suður-Mjódd. Deiliskipulag fyrir svæðið hefur verið unnið í samvinnu ÍR og borgaryfirvalda og fer það brátt í hefðbundna kynningu.
Borgarráð hefur samþykkt að verja 50 milljónum króna af framkvæmdafé ársins 2015 til þessa verkefnis.
Aðrar fréttir
Veitir Bjarkarhlíð 15 milljóna króna styrk
Ríkissjóður kaupir alla hluti Landsvirkjunar, RARIK og Orkubús Vestfjarða í Landsneti hf.
Willum Þór fundaði með heilbrigðisráðherra Grænlands