Þeir sem standa fyrir þrettándabrennum í Reykjavík hafa ákveðið að fresta þeim til næstu helgar vegna veðurs. Dagskrá og aðrar tímasetningar eru óbreyttar.
Þrettándahátíð Vesturbæjar
Þrettándahátíð Vesturbæjar verður á laugardag 9. janúar kl. 18.00 við KR-heimilið með þeirri dagskrá sem áður var auglýst.
- 18.00 Mæting við KR – heimilið
- 18.30 Gengið niður að Ægisíðu
- 18.30 Kveikt í brennu
- 18.45 Flugeldasýning í samstarfi við KR- flugelda.
Þrettándagleði Grafarvogsbúa
Árlegri Þrettándagleði Grafarvogsbúa er frestað til laugardags 9. janúar og hefst hún kl. 17.15 við Hlöðuna hjá Gufunesbænum.
- 17:15 Kakó– og kyndlasala í Hlöðunni. Skólahljómsveit Grafarvogs leikur létt lög
- 17:50 Blysför frá Hlöðunni
- 18:00 Kveikt í brennu, skemmtun á sviði
- 18:30 Þrettándagleði lýkur með skot kökusýningu í boði frístundamiðstöðvar Gufunesbæjar
Þrettándabrenna í Grafarholti
Þrettándagleðin í Grafarholti verður einnig haldin laugardaginn 9. janúar og verður safnast saman við Guðríðarkirkju upp úr klukkan 18:15
- 18.15 Safnast saman við Guðríðarkirkju. Kyndlasala.
- 18.45 Lagt af stað í skrúðgöngu niður í Leirdal
- 19.15 Kveikt í brennunni í Leirdal. Jólasveinarnir mæta á svæðið og syngja með. Veitingasala í Leirdalnum þar sem fólk getur fengið sér hressingu eftir gönguna.
- 20.00 Flugeldasýning
Aðrar fréttir
65 ára afmælishátíð Sjálfsbjargar
Sæbraut lokað vegna kvikmyndatöku
Nýtt björgunarskip Landsbjargar komið til landsins með Brúarfossi