Laugardalsvöllur leitar eftir sumarstarfsfólki fyrir sumarið 2016. Starfið er krefjandi og fjölbreytt og snýr að vallarsvæði Laugardalsvallar, almennri umhirðu þess og viðhaldi. Frábært væri að umsækjendur gætu byrjað snemma í maí og unnið fram í október. Annars er hægt að semja um vinnutímabil ef þess þarf.
Æskilegt er að umsækjendur séu á aldrinum 20-30 ára og vera tilbúnir að leggja á sig mikla vinnu yfir sumarmánuðina og fram á haust. Tilvalið starf með skóla.
Starfið byggist á dagvinnu og mikilli yfirvinnu á kvöldin og um helgar í kringum frjálsíþróttamót, knattspyrnuleiki og aðra viðburði á vellinum.
Umsókninni skal fylgja ferilskrá, hvenær viðkomandi getur hafið störf og almennar upplýsingar um viðkomandi.
Áhugsamir um þetta starf og frekari upplýsingar er hægt að finna með að senda póst á kristinn@ksi.is
Umsóknarfrestur er til hádegis 15. apríl 2016.
Aðrar fréttir
65 ára afmælishátíð Sjálfsbjargar
Sæbraut lokað vegna kvikmyndatöku
Nýtt björgunarskip Landsbjargar komið til landsins með Brúarfossi