Óskað var aðstoðar lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni við að fjarlægja drukkinn og ógnandi farþega sem var að koma með flugi frá Halifax. Um var að ræða karlmann á fimmtugsaldri sem hóf að haga sér dólgslega strax í upphafi flugs. Var hann ógnandi, með ólæti og barði meðal annars í sjónvarpsskjá sem ætlaður er farþegum. Þá rauf hann innsigli á bakka fyrir björgunarvesti og reif vestið fram. Áhöfn vélarinnar reyndi að tala hann til og róa hann, en án árangurs.
Lögreglan á Suðurnesjum handtók manninn við komuna til landsins vegna brots á lögum um loftferðir og að hafa ógnað öryggi loftferða. Tekin var af honum skýrsla og hann síðan vistaður í fangaklefa.
Aðrar fréttir
Ráðherra kynnti bætta afkomu og aðhald í ríkisrekstri
Umsækjendur um embætti forstjóra Geislavarna ríkisins
Mælti fyrir frumvarpi þar sem stutt er betur við umönnunaraðila langveikra og fatlaðra barna