03/12/2023

Reykvíkingur

Reykjavíkurfréttir

Nýtt grasæfingasvæði í Úlfarsárdal

Nýtt grasæfingasvæði fyrir knattspyrnuiðkun verður útbúið á íþróttasvæði Fram í Úlfarsárdal. Þar verða tveir æfingavellir.

Borgarráð hefur heimilað umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir vegna grasæfingasvæðis á íþróttasvæði Fram í Úlfarsárdal. Útbúnir verða tveir æfingavellir með vökvunarkerfi. Svæðið verður girt með þar til gerðum girðingum með inngöngu og aksturshliðum sem henta knattspyrnuvöllum.

Ráðast þarf í jarðvegsskipti á svæðinu og tryggja gott affall regnvatns á völlunum. Ofan á vellina kemur ákveðið jöfnunarlag með þjöppun og þar á ofan sáningarlag.

Sáð verður fyrir grasi á æfingasvæðunum en utan valla verður sáð úthagagrasi auk þess sem trjám og runnum verður plantað í gróðurási við vellina til að fegra svæðið og mynda skjól.

Kostnaðaráætlun er 250 milljónir.

Framkvæmdum við íþróttamiðstöð Fram í Úlfarsárdal gengur vel. Uppsteypu er lokið og innanhússfrágangur kominn á fullt. Verklok eru áætluð um mitt ár 2022.

Þá miðar framkvæmdum við menningarmiðstöð og nýja útisundlaug einnig vel.

Afstöðumynd sem sýnir grasvellina og íþróttasvæði Fram í Úlfarsárdal.