
Í gær var stór dagur þegar Björg, nýjasta björgunarskip félagsins, var hífð frá borði Brúarfoss, skipi Eimskipafélagsins í Sundahöfn.
Björg er fjórða skipið í nýsmíðaverkefni Slysavarnafélags Landsbjargar og mun leysa af hólmi skip með sama nafni á Rifi á Snæfellsnesi. Það skip var smíðað árið 1988 og er því orðið 36 ára gamalt.
Meðalaldur þeirra björgunarskipa sem eftir á að endurnýja er þá 38 ár. Elsta skipið er Hannes Þ. Hafstein í Sandgerði, sem var smíðað árið 1978 er því orðið 46 ára gamalt. Það yngsta af þeim sem stendur til að endurnýja er Gísli Jóns á Ísafirði, smíðaður árið 1995 og er því 29 ára.
Næstu daga fara fram skoðanir á Björg, í aðdraganda útgáfu haffæris skírteinis, ásamt því að settur verður í hana ýmis tækjabúnaður eins og Tetra talstöðvar.
Björg verður til sýnis á ráðstefnunni Björgun24 í Hörpu, dagana 11-13. október næst komandi ásamt Jóhannesi Briem, þriðja skipinu í nýsmíðaverkefninu.
Aðrar fréttir
65 ára afmælishátíð Sjálfsbjargar
Sæbraut lokað vegna kvikmyndatöku
Varautanríkisráðherra Bandaríkjanna á Íslandi