Í gær, þriðjudaginn 18. ágúst, klukkan 16:11 barst tilkynning á lögreglustöðina á Höfn í Hornafirði, um líkfund í Laxárdal í Nesjum. Lögreglumenn á Höfn fóru þegar á vettvang. Landhelgisgæslan lagði til þyrlu til að flytja rannsóknarlögreglumann frá rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi, lögreglumenn úr Kennslanefnd ríkislögreglustjóra, rannsóknarlögreglumann frá Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðisins og réttarlækni á staðinn.
Ekki hefur verið borin kennsl á líkið. Kennslanefnd hefur gefið út að líkið sé af ungum karlmanni um það bil 186 sentimetrar á hæð með ljóst axlasítt hár klætt í svarta strigaskó með hvítri stjörnu á hlið, dökkbláar íþróttabuxur og hettupeysu með áletrun að framan „QUICKSILVER“. Ætla má að maðurinn hafi látist fyrir einhverjum mánuðum síðan. Málið er í rannsókn og ekkert hægt að segja til um á þessu stigi með hvaða hætti andlát mannsins bar að.
Lögreglan á Suðurlandi biðlar til allra þeirra sem gætu veitt upplýsingar sem gætu átt við lýsingu hér að ofan, þær má hringja inn í síma 842 4250.
Þetta kemur fram á vef Lögreglunnar.
Aðrar fréttir
Stórfelld lækkun gjalds fyrir brjóstaskimanir
Opnað að nýju fyrir umsóknir um hlutdeildarlán
Tekjumörk hlutdeildarlána hækkuð