Landsbankinn hefur stefnt Borgun hf., forstjóra Borgunar hf., BPS ehf. og Eignarhaldsfélaginu Borgun slf.
Málið er höfðað til viðurkenningar á skaðabótaskyldu stefndu. Það er mat bankans að hann hafi orðið af söluhagnaði við sölu á 31,2% hlut sínum í Borgun hf. árið 2014. Bankinn fékk ekki upplýsingar sem stefndu bjuggu yfir um að Borgun hf. ætti hlut í Visa Europe Ltd. og réttindi sem fylgdu hlutnum, þ. á m. mögulega hlutdeild í söluhagnaði Visa Europe Ltd. við nýtingu söluréttar í valréttarsamningi Visa Inc. og Visa Europe Ltd.
Aðrar fréttir
Ný þjóðarhöll mun kosta 16,8 milljarða samkvæmt tilboði Íslenskra aðalverktaka
Jensína Edda Hermannsdóttir er Reykvíkingur ársins 2026
Samþykkt að reisa nýtt sýninga- og æfingarými við Þjóðleikhúsið