Brot 139 ökumanna voru mynduð í Stekkjarbakka í Reykjavík í dag, en Lögreglan var með eftirlit á svæðinu. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stekkjarbakka í vesturátt, við Vatnsveituveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 438 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 86.
Vöktun lögreglunnar í Stekkjarbakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.
Aðrar fréttir
Veitir Bjarkarhlíð 15 milljóna króna styrk
Ríkissjóður kaupir alla hluti Landsvirkjunar, RARIK og Orkubús Vestfjarða í Landsneti hf.
Willum Þór fundaði með heilbrigðisráðherra Grænlands