Lögreglan myndaði 77 brot ökumanna á Reynisvatnsvegi í Reykjavík þann 6. maí síðastliðinn. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reynisvatnsveg í austurátt, að Jónsgeisla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 293 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 77.
Vöktun lögreglunnar á Reynisvatnsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.
Aðrar fréttir
Veitir Bjarkarhlíð 15 milljóna króna styrk
Ríkissjóður kaupir alla hluti Landsvirkjunar, RARIK og Orkubús Vestfjarða í Landsneti hf.
Willum Þór fundaði með heilbrigðisráðherra Grænlands