Brot 11 ökumanna voru mynduð af Lögreglunni á Sæbraut í Reykjavík á föstudaginn sl. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í suðurátt, á móts við Dugguvog 2. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 767 ökutæki þessa akstursleið og því óku sárafáir ökumenn, eða 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 71 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.
Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.
Aðrar fréttir
Veitir Bjarkarhlíð 15 milljóna króna styrk
Ríkissjóður kaupir alla hluti Landsvirkjunar, RARIK og Orkubús Vestfjarða í Landsneti hf.
Willum Þór fundaði með heilbrigðisráðherra Grænlands