Sýningin Meistarahendur verður opnuð í Ásmundarsafni laugardaginn 10. maí kl. 16. Þar gefur að líta verk sem spanna feril Ásmundar Sveinssonar og sýna vel þróunina sem varð á sýn hans í gegnum tíðina.
Meðal verka á sýningunni er sveinstykki Ásmundar, útskorinn stóll frá námsárum hans 1915-1919 hjá Ríkarði Jónssyni og höggmyndir sem hann gerði sem nemandi við sænska ríkisakademíið. Síðar komu stórbrotin meistaraverk sem lofsyngja íslenska alþýðu, sagnir og náttúru og loks er á sýningunni fjöldi abstraktverka sem listamaðurinn vann á síðustu áratugum ævi sinnar.
Ásmundur Sveinsson var á meðal frumkvöðla íslenskrar höggmyndalistar og sótti innblástur fyrst og fremst í íslenska náttúru, bókmenntir og til þjóðarinnar. Efnismikil, kröftug og stundum ógnandi verk hans eru lík þeim kynjamyndum sem oft má lesa úr íslenskri náttúru. En þó myndefni Ásmundar hafi fyrst og fremst verið af þjóðlegum toga, tileinkaði hann sér engu að síður meginstrauma alþjóðlegrar listsköpunar eins og ekkert stæði honum nær og gaf henni um leið íslenskt yfirbragð – íslenskt inntak.
Heimild: Reykjavik.is
Aðrar fréttir
Listasafn Reykjavíkur hlaut Íslensku safnaverðlaunin 2024
Veitir 40 milljónir í styrki til atvinnumála kvenna
Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar