Listasafn Einars Jónssonar og Listasafn Íslands voru formlega sameinuð um áramótin en stefna ríkisins er að sameina stofnanir með það að leiðarljósi að efla starfsemi þeirra og þjónustu við almenning og ná þannig betri nýtingu opinberra fjármuna.
Sameiningin býður upp á ýmis tækifæri svo sem samræmdan opnunartíma í söfnunum þremur sem tilheyra Listasafni Íslands sem telja Safnahúsið á Hverfisgötu, Listasafnið við Fríkirkjuveg og nú Listasafn Einars Jónssonar við Hallgrímstorg auk þess sem gestir geta nú keypt einn miða sem veitir aðgang að öllum söfnunum þremur.
„Það er fagnaðarefni að hið sameinaða safn geti tekið á móti fleiri gestum með því að fjölga þeim klukkustundum sem menningarverðmæti þjóðarinnar eru til sýnis. Sameiningin býður einnig upp á að forvarsla verður bætt, innviði styrkjast með sameiginlegum rekstri, kynningar- og fræðslustarf mun eflast og er í raun hafið líkt og dagskrá safnsins ber vott um. Einnig er stefnt af því að bæta aðgengi út í höggmyndagarðinn úr safninu og ná þannig enn betur til þeirra þúsunda gesta sem heimsækja garðinn á ári hverju,” segir Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Til að fagna þessum áfanga verður gestum og gangandi boðið til þrettándagleði í safninu þann 6. janúar.
„Við viljum ná betur til almennings og nemenda á öllum aldri en söfnin þurfa líka að vera spennandi kostur fyrir erlenda gesti. Með auknum stuðningi náum við að lengja opnunartíma á Listasafni Einars Jónssonar og getum þá tekið á móti fleiri gestum á safnið en á torgi fyrir framan Hallgrímskirkju koma tvær milljónir ferðamanna á hverju ári – steinsnar frá þessari þjóðargersemi sem safnið er. Verk Einars eru forvitnileg og safnið er einstakur staður sem gefur innsýn inn í annan heim. Nú á vormisseri munum við byrja með Krakkaklúbbinn Krumma þar sem börn í fylgd með fullorðnum geta kynnst verkum Einars í gegnum skapandi vinnu. Við verðum líka með stutt námskeið fyrir fullorðna þar sem Sigurður Trausti Traustason, safnfræðingur og sérfræðingur í verkum Einars, mun segja frá myndheimi hans og táknfræði og Margrét H. Blöndal, myndlistarmaður, leiðir skoðun í gegnum teikningu á verkunum og þessu ævintýralega húsi”, segir Ingibjörg Jóhannsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands. Opnunartími Listasafns Einars Jónssonar er nú alla daga frá 10 – 17 en áður var safnið opið frá kl. 12 og lokað á mánudögum.
Fyrrum stjórn safnsins mun fá nýtt hlutverk við að halda utan um afsteypusjóð Listasafns Einars Jónssonar og vera Listasafni Íslands til ráðgjafar.
Þrettándagleði í listasafni og garði Einars Jónssonar
Töfrandi heimur verka Einars Jónssonar ljáir gestum sýn inn í annan heim og gestum á öllum aldri er boðið að koma og gleðjast saman. Gestir eru hvattir til að koma inn um garðinn þar sem snarkandi eldur og glitrandi stjörnuljós verða innan um ævintýralegar höggmyndirnar. Söngur Kvæðakórsins mun óma og boðið verður upp á heitan drykk í svölu vetrarloftinu.
Inni á safninu sjálfu verður blásið til listasmiðju fyrir börn af öllum kynslóðum þar sem töfrasprotar úr birkigreinum og óskastundir verða í forgrunni auk sögustunda á sérhverju korteri þar sem þjóðsögur frá ýmsum löndum verða lesnar.
Dagskrá
17:05 Safnstjóri býður gesti velkomna í garðinum.
17:10 Kvæðakórinn syngur og kveður kvæði í garðinum.
17 – 18:30 Listasmiðja fyrir allar kynslóðir. Töfrasprotar og óskastundir. Jarðhæð.
17:30/17:45/18:00/18:15 Þjóðsögur frá ýmsum löndum, sögustundir inni í safninu.
18:30 Kvæðakórinn fer fyrir samsöng í garðinum, stjörnuljós í boði að söng loknum.
Aðrar fréttir
Samþykkt að reisa nýtt sýninga- og æfingarými við Þjóðleikhúsið
Tilnefningar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar 2025
Listasafn Reykjavíkur hlaut Íslensku safnaverðlaunin 2024