Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sæmdi Friðrik Ólafsson stórmeistara í skák, heiðursborgaranafnbót við hátíðlega athöfn í Höfða, þann 28. janúar síðastliðinn. Friðrik Ólafsson er sjötti einstaklingurinn sem gerður er að heiðursborgara Reykjavíkurborgar. Þeir sem hlotið hafa þessa nafnbót áður eru; séra Bjarni Jónsson árið 1961, Kristján Sveinsson augnlæknir árið 1975, Vigdís Finnbogadóttir árið 2010, Erró árið 2012 og Yoko Ono árið 2013.
Með því að sæma Friðrik Ólafsson heiðursborgaratitli vill Reykjavikurborg þakka Friðriki fyrir árangur hans og afrek á sviði skáklistarinnar. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagði það vel við hæfi að heiðra Friðrik á áttræðisafmælinu, en hann átti afmæli þann 26. janúar sl. Dagur sagði að áhugi á skák væri óvíða meiri en á Íslandi og líklega hefði enginn Íslendingur haft jafn mikil áhrif á skákíþróttina hérlendis og Friðrik Ólafsson. Hans dýrmæta framlag til íslenskrar menningar væri þakkarvert.
Í ræðu borgarstjóra kom fram að Friðrik hafi ungur að árum sýnt óvenjulega dirfsku og hugkvæmni og í skákum hans hafi hann sýnt meiri tilþrif en menn áttu að venjast. Hann var ungur að árum eða aðeins 17 ára gamall þegar hann varð Íslandsmeistari, 18 ára Norðurlandameistari og stórmeistari í skák árið 1958 fyrstur íslenskra skákmanna.
Heimild: reykjavik.is
Aðrar fréttir
Listasafn Reykjavíkur hlaut Íslensku safnaverðlaunin 2024
Veitir 40 milljónir í styrki til atvinnumála kvenna
Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar