Ríkisstjórnin samþykkti á fundi þann 23. mars síðastliðinn tillögur Stjórnstöðvar ferðamála um aðkallandi aðgerðir á árinu 2016 til að bæta öryggi ferðamanna og um leið almennings í landinu. Aðgerðirnar snúa að málefnasviðum á vettvangi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, innanríkisráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra og skulu þeir setja þær í forgang og beita sér fyrir því að stofnanir á þeirra málefnasviðum hliðri til eins og frekast er unnt til að tryggja framgang umræddra verkefna.
Tillögurnar sem samþykktar voru eru afrakstur markvissrar vinnu starfshóps undir forystu Stjórnstöðvar ferðmála. Markmið hópsins var að móta hnitmiðaðar tillögur sem myndu skila sem mestum árangri og hægt væri að framkvæma á árinu. Að tillögugerðinni komu fulltrúar frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, innanríkisráðuneytinu, lögreglunni, Landsbjörgu, Vatnajökulsþjóðgarði, Umhverfisstofnun, Samgöngustofu, Vegagerðinni, Rannsóknarnefnd samgönguslysa, Félagi leiðsögumanna, SAF og Ferðamálastofu.
- Brýnar úrbætur á 24 ferðamannastöðum sem eru fjölsóttir og taldir varasamir.
- Staðirnir eru: Arnarstapi, Dettifoss, Djúpalónssandur, Dyrhólaey, Geysir, Goðafoss, Grjótagjá og Stjóragjá, Gullfoss, Gunnuhver, Fjaðrárgljúfur, Jökulsárlón, Ketubjörg, Kolugljúfur, Krísuvíkurbjarg, Látrabjarg, Námaskarð/Leirhnjúkur, Reykjadalur, Reynisfjara, Seljalandsfoss, Seltún, Skógafoss, Sólheimajökull, Svínafellsjökull, Víti/Askja/Drekagil.
Aukin varsla á svæðum undir álagi til að auka öryggi
- Tillagan gerir ráð fyrir að landvörðum verði fjölgað en þeir gegna lykilhlutverki við aðstoð, upplýsingagjöf og eftirlit vegna þekkingar þeirra á staðháttum. Árið 2013 voru landvarðavikur á vegum Vatnajökulsþjóðgarðs og Umhverfisstofnunar u.þ.b. ein landvarðavika fyrir hverja 1.000 ferðamenn en verða að óbreyttu, ef spár um fjölda erlendra ferðamanna nær fram að ganga, um ein vika fyrir hverja 1.780 ferðamenn. Ljóst er að miðað við spá um fjölgun ferðamanna verður að fjölga landvörðum og forgangsraða eftir hættusvæðum.
- Tillögurnar fela í sér að landvörðum fjölgi þannig að það verði ein landvarðavika fyrir hverja 1.370 ferðamenn árið 2016. Alls er þannig gert ráð fyrir um 30% aukingu í landvörslu á svæðum í umsjón Vatnajökulsþjóðgarðs og Umhverfisstofnunar.
Löggæsla
- Yfir sumarmánuðina verður eftirlit lögreglu aukið á fjórum svæðum; á hálendinu, á Suðurlandi, á Norðurlandi Eystra og á Suð- Austurlandi. Þá verður löggæsla í uppsveitum Árnessýslu og á ferðaleiðinni Gullna hringnum aukin allt árið.
Öryggi á vegum
- Lögð verður sérstök áhersla á að auka öryggi og vetrarþjónustu að fjölförnustu ferðamannastöðunum. Forgangsröðunin tekur mið af umferðarþunga, mati á hættu og fjölda útkalla vegna ferðamanna en markmiðið er að auka umferðaröryggi bæði á þjóðvegum og ferðamannaleiðum.
Bætt upplýsingagjöf og forvarnir
- Markmiðið með góðri upplýsingagjöf, eftirliti og forvörnum er að hindra slys og óhöpp í stað þess að bregðast við þeim. Verkefnin sem um ræðir eru að styrkja hálendisvakt Landsbjargar, fjölga upplýsingaskjám SafeTravel, setja upp upplýsingaskjá í Leifsstöð, efla fræðslu og kynningarstarf á vegum Landsbjargar (SaveTravel), endurbæta og halda áfram að prenta stýrisspjöld í bílaleigubíla.
Aðrar fréttir
65 ára afmælishátíð Sjálfsbjargar
Sæbraut lokað vegna kvikmyndatöku
Nýtt björgunarskip Landsbjargar komið til landsins með Brúarfossi